Til styrktar ungmennum
Ætlun Guðs er að leiða ykkur heim
Maí 2024


Sunnudagsmorgunn

Ætlun Guðs er að leiða ykkur heim

Útdráttur

Ljósmynd
veggspjald

Hala niður PDF-skjali

Á heimleið, eftir Yongsung Kim

Allt í áætlun föðurins fyrir ástkær börn hans er hannað til að leiða alla heim. …

Þýðir þetta að það skipti engu hvernig við lifum lífi okkar? … Nei, auðvitað ekki. … Allar kenningar hans gefa í grunnatriðum til kynna að það að lifa á æðra plani siðferðislegrar breytni sé ákall um persónulega framþróun, til umbreytandi trúar á Krist, til máttugrar breytingar hjartans. …

Ef við trúum að ætlun altækrar áætlunar föðurins sé að frelsa okkur, endurleysa okkur, sýna okkur miskunn og þar með færa okkur hamingju, hver er þá ætlun sonarins sem leiddi fram þessa miklu áætlun? …

Vilji Jesú er vilji hins gæskuríka föður! Hann vill gera hverju einasta barni föður síns mögulegt að ná lokatakmarki áætlunarinnar – eilífu líf með þeim. Enginn er undanskilinn þessum guðlegu möguleikum. …

Frelsarinn, góði hirðirinn, fer og leitar að týndum sauðum sínum þar til hann finnur þá. …

Nei, hann setur ekki upp vegatálma eða fyrirstöður; hann fjarlægir það. Hann heldur ykkur ekki fjarri; hann býður ykkur velkomin inn. …

Þetta eru góðu fréttirnar! Ég er ólýsanlega þakklátur fyrir þennan einfalda sannleika. Ráðagerð föðurins, áætlun hans, stefna hans, ásetningur hans, ósk hans og von hans, eru einungis til þess gerð að lækna ykkur, til að færa ykkur frið, til að leiða ykkur og ástvini ykkar heim.

Heimildir

  1. D. Todd Christofferson, „Elder Patrick Kearon: Prepared and Called by the Lord,“ Liahona, maí 2024, 131.

  2. Patrick Kearon, „Reach Out and Look for the Good,“ For the Strength of Youth, sept. 2022, 9.

  3. „Elder Patrick Kearon Called to the Quorum of the Twelve Apostles,“ 8. desember 2023, newsroom.ChurchofJesusChrist.org.

Prenta