Til styrktar ungmennum
Musteri, hús Drottins þekja jörðu
Maí 2024


Sunnudagssíðdegi

Musteri, hús Drottins þekja jörðu

Útdráttur

Ljósmynd
veggspjald

Hala niður PDF-skjali

Hafið þið velt fyrir ykkur af hverju Drottinn leiðbeinir spámanni sínum að þekja jörðina núna með sínum heilögu musterum? …

Ein ástæða er sú, að mitt í umróti og freistingum heimsins, hefur hann lofað að styrkja og blessa sína sáttmálsheilögu og loforð hans eru að uppfyllast! …

Í húsi hans erum við bókstaflega gædd himneskum krafti. Trú okkar á Jesú Krist og elska okkar til hans er staðfest og styrkt. Við lærum að elska hann jafnvel heitar. Við erum andlega fullvissuð um okkar sanna auðkenni og tilgang lífsins. Þegar við erum trúföst, erum við blessuð með vernd frá freistingum og truflunum. Við finnum elsku frelsarans þegar hann lyftir okkur frá erfiðleikum, og sorgum. Við erum vopnuð mætti Guðs. …

Kæru vinir mínir, ef við getum, og höfum ekki þegar aukið sókn okkar í musterið, skulum við reglubundið gefa okkur meiri tíma til að tilbiðja í húsi Drottins. …

Musterið er bókstaflega hús Drottins. Ég lofa ykkur að þegar þið komið verðug og bænheit í hans heilaga hús, munuð þið gædd krafti hans, nafn hans mun hvíla yfir ykkur, englar hans vaka yfir ykkur og þið munið vaxa upp í blessun heilags anda. …

Á þessum degi glundroða og uppnáms, ber ég vitni um að musterið er hans heilaga hús og mun hjálpa við að varðveita og vernda okkur og búa okkur undir hinn dýrðlega dag, er frelsari okkar kemur aftur með öllum sínum heilögu englum, í mikilfengleika, veldi og mikilli dýrð.

Prenta