37. Kafli
Opinberun gefin spámanninum Joseph Smith og Sidney Rigdon í grennd við Fayette, New York, í desember 1830. Hér eru gefin fyrstu fyrirmælin um samansöfnun í þessum ráðstöfunum.
1–4, Hinum heilögu sagt að safnast til Ohio.
1 Sjá, ég segi ykkur, að ykkar vegna og sakir óvinanna þykir mér ekki nauðsynlegt, að þið þýðið meira fyrr en þið farið til Ohio.
2 Og enn segi ég ykkur, að þið skuluð ekki fara fyrr en þið hafið boðað fagnaðarerindi mitt í þessum landshlutum og hafið styrkt kirkjuna hvar sem hún finnst, og þá sérstaklega í Colesville, því að sjá, þeir biðja til mín í sterkri trú.
3 Og enn fremur gef ég kirkjunni þau fyrirmæli, að mér þykir nauðsynlegt að þeir safnist saman í Ohio fram að þeim tíma, er þjónn minn Oliver Cowdery kemur aftur til þeirra.
4 Sjá, hér er viska, og lát sérhvern mann velja fyrir sig sjálfan þar til ég kem. Já, vissulega. Amen.