Námshjálp
ÞJS, Markús 8


ÞJS, Markús 8:37–38. Samanber Markús 8:35

Hver sá, sem er fús til að deyja fyrir málstað Jesú, mun hólpinn verða.

37 Því að hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því, eða hver sem vill bjarga lífi sínu, skal vera fús til að fórna því fyrir mig, og ef hann er ekki fús til að fórna því fyrir mig, þá mun hann týna því.

38 Og hver sem er fús til að týna lífi sínu vegna mín og fagnaðarerindisins, mun bjarga því.

ÞJS, Markús 8:42–43. Samanber Markús 8:38

Fólk sem blygðar sín fyrir Krist mun engan hlut eiga í fyrstu upprisunni, en þeir sem eru fúsir til að deyja fyrir Krist, munu koma með honum í dýrð hans.

42 Þeir munu ekki eiga hlut í þeirri upprisu, þegar hann kemur.

43 Sannarlega segi ég yður, að hann mun koma, og sá sem fórnar lífi sínu fyrir mínar sakir og fagnaðarerindið, mun koma með honum og verða íklæddur dýrð hans í skýjunum, við hægri hönd mannssonarins.

Prenta