Sýna og segja
Þegar ég hugsa um musterið líður mér vel. Ég hlakka til að verða 11 ára og þjóna í musteri himnesks föður.
Rafael D., 10 ára, Paraná, Brasilíu
Ættartréð mitt er fallegt því á því eru nöfn og myndir af ömmum mínum, öfum og frændsystkinum mínum. Ég hef skráð 1.156 nöfn! Ég trúi því að skráning sé ein leið til að færa fjölskyldur saman.
Grace D., 11 ára, stór Accra-svæðinu, Gana
Nýr drengur flutti í skólann okkar á miðju skólaári. Ég bauðst til að hjálpa honum að finnast hann velkominn. Hann er einn af nýju vinum mínum.
Connor E., 7 ára, Mazovia, Póllandi.
Ég fæddist í Gvatemala og á Día de Muertos, eða allrasálnamessu, býr fólk þar til flugdreka til að minna þá á skyldmenni sem hafa dáið. Ég bjó til flugdreka með myndum af áum mínum og mynd af mér í miðjunni til að minna mig á elsku þeirra.
Sienna S., 8 ára, Utah, Bandaríkjunum
Ég hjálpa til við að bera eldivið til fjölskyldu, svo þau geti haft hita á heimili sínu.
Sebastian B.,10 ára, Virginíu, Bandaríkjunum
Við hjálpuðum til í birgðastöðinni við að fylla kassa af mat. Það minnti okkur á að vera þakklát fyrir það sem við höfum. Við vorum glaðar að geta þjóna með deildinni okkar.
Emma K. og Charlotte F., 9 og 11 ára, New Jersey, Bandaríkjunum.
Þegar Nelson forseti bað okkur að lesa Mormónsbók, ákvað ég að lesa hana með foreldrum mínum. Ég fann heilagan anda segja mér að Mormónsbók væri sönn. Ég hef verið að lesa ritningarnar mínar á hverjum degi og hef öðlast sterkari vitnisburð.
Savanna R., 10 ára, Texas, Bandaríkjunum
„Kristur elskar okkur,“ Andrea V., 8 ára, Retalhuleu, Gvatemala
Emma C., 7 ára, Santiago, Síle
„Færa þakkir,“ Lincoln H., 10 ára, Idaho, Bandaríkjunum
„Jónas og hvalurinn,“ Ben M., 10 ára, Missouri, Bandaríkjunum.
Bobby H., 8 ára, Alberta, Kanada