Sögur úr ritningunum
Hugrekki Jósúa
Eftir dauða Móse, valdi Drottinn Jósúa til að verða spámaður. Guð sagði Jósúa að hann skyldi vera sterkur og hugrakkur.
Jósúa leiddi fólkið til fyrirheitna landsins. Þegar það fór yfir ána Jórdan, stöðvaði Guð rennsli vatnsins til að það gæti gengið yfir.
Jósúa kenndi fólkinu um ákvarðanir. Hann sagði að það gæti ákveðið hvort það myndi fylgja Guði eða ekki.
Jósúa ákvað að fylgja Guði. Margir meðal fólksins ákváðu að gera það líka.
Ég get sýnt hugrekki eins og Jósúa gerði. Ég get ákveðið að fylgja Guði.