„Leggja grunninn,“ Til styrktar æskunni, jan. 2021, 19.
Orð á orð ofan
Leggja grunninn
Þema þessa árs hjálpar ykkur að skilja hlutverk ykkar við uppbyggingu ríkis Guðs.
Gjöra gott
Það að gjöra gott hvetur eða vekur áhuga annarra til að gera góða og göfuga hluti.
Grunnur
Neðsti hluti byggingar, ber þunga mannvirkisins sem á honum stendur.
Mikið verk
Hið mikla verk okkar er að vinna að uppbyggingu ríkis Guðs á jörðu, þar með talið að safna saman Ísrael.1
Af hinu smáa
Hvert lítið góðverk sem þið gerið hjálpar til við byggingu hins stóra.
Hjarta og viljugur hugur
Drottinn æskir þess af okkur að við helgum verki hans þrár okkar, hugsanir og tilfinningar.
Neyta gæða landsins
Úr Gamla Testamentinu og þýðir að hafa allsnægtir (sjá Jesaja 1:19).
Síon
Síon getur þýtt: Þjóð Drottins, staður þar sem fólk Drottins dvelur eða hvernig fólk Drottins lifir (hreint í hjarta, lifir eftir himnesku lögmál).
Sjá Leiðarvísi að ritningunum, „Síon,” ChurchofJesusChrist.org/study/scriptures/gs?lang=isl.