Það sem hafa skal hugfast
Takið þessa blaðsíðu varlega úr tímaritinu og hengið hana á stað þar sem þið sjáið hana á hverjum degi!
Þið getið gert ótrúlega hluti.
„Allt megna ég fyrir hjálp [Krists] sem mig styrkan gerir“ (Filippíbréfið 4:13).
Þið eruð mikilvæg.
„Hafið hugfast að verðmæti sálna er mikið í augum Guðs“ (Kenning og sáttmálar 18:10).
Þið eruð elskuð.
„[Ekkert mun] geta gert okkur viðskila við kærleika Guðs sem birtist í Kristi Jesú, Drottni vorum“ (Rómverjabréfið 8:39).
Þið eruð ástkær börn himneskra foreldra.
„[Þér eruð … öll saman börn] Hins hæsta“ (Sálmarnir 82:6).
Þið getið hjálpað öðrum.
„Þjónið hvert öðru í kærleika“ (Galatabréfið 5:13).
Þið getið orðið eins og Jesús.
„Sjá ég er ljósið. Ég hef sýnt yður fordæmi“ (3. Nefí 18:16).