Fylgja Jesú í sameiningu
Barnafélag í Denbighshire, Wales, gerði þessa mynd af Fyrstu sýninni í sameiningu!
Ég les ritningarnar mínar á hverjum degi, til að læra eitthvað nýtt. Ég hlakka til að þjóna í trúboði!
Rashad E., 10 ára, Vestur-Virginíu, Bandaríkjunum
Ég er með kvíðaröskun. Mamma gaf mér nokkur ráð til að draga úr kvíðanum, en hann hvarf ekki. Ég baðst fyrir um hjálp og kvíðinn tók að hjaðna!
Felix G., 10 ára, Kaliforníu, Bandaríkjunum
Ég skreytti kassa og fyllti hann af vatnsflöskum og handhiturum fyrir útburðarfólkið sem kom í íbúðarblokkina okkar. Ég reyni að þjóna eins og Jesús!
Ellie Rose M., 6 ára, New York, Bandaríkjunum
Við lærðum um Saskatchewan í skóla. Ég gat sagt bekkjarfélögum mínum og kennaranum að systir mín væri í trúboði þar!
Jakob S., 7 ára, Alberta, Kanada
Við bjuggum til báta! Einn þeirra var bátur sem ættmenni mín í sjötta ættlið sigldu á þegar þau fluttust til Bandaríkjanna frá Svíþjóð.
Aksel og Declan M., 6 og 9 ára, Norður-Karolínu, Bandaríkjunum
Ég heyrði nokkur ljót orð sem vöktu mér slæmar tilfinningar. Þegar ég kom heim, baðst ég fyrir um hjálp til að gleyma þessum orðum. Himneskur faðir bænheyrði mig.
Emree H., 10 ára, Oregon, Bandaríkjunum
Einn bekkjarfélaga minna óttaðist að fara í skóla. Ég fór til hans snemma dag hvern og beið eftir honum, svo hann væri ekki einn. Það veitir mér gleði að hjálpa öðrum, því ég fylgi Jesú.
Fang Z., 6 ára, Hsinchu, Tævan
Emmy S., 8 ára, Michigan, Bandaríkjunum
Madeline H., 9 ára, Úlan Bator, Mongolíu
„Fjölskylda mín,“ Janus C., 7 ára, Nýja-Suður-Wales, Ástralíu