Líahóna
Sáttmálsfullvissa gegnum Jesú Krist
Maí 2024


Laugardagsmorgunn

Sáttmálsfullvissa gegnum Jesú Krist

Útdráttur

Ljósmynd
veggspjald

Hala niður PDF-skjali

Kæru bræður og systur, þau sem hljóta einlæga fullvissu um sáttmálana sem gerðir eru í húsi Drottins gegnum Jesú Krist, búa yfir einu sterkasta aflinu sem við getum haft aðgang að í þessu lífi. …

Hvernig hljótum við slíka fullvissu fyrir milligöngu Jesú Krists? Hún verður til með auðmýkt, með því að hafa frelsarann að þungamiðju lífs okkar, lifa eftir reglum fagnaðarerindis Jesú Krists, meðtaka helgiathafnir sáluhjálpar og upphafningar og heiðra sáttmálana sem við gerum við Guð í heilögu húsi hans. …

Ég veit að þegar Drottinn sér jafnvel vott af þrá eða réttlátri viðleitni og fúsleika til að hafa hann og helgiathafnirnar og sáttmálana sem við gerum í húsi hans að þungamiðju lífs okkar, þá mun hann blessa okkur, á sinn fullkomna hátt, með þeim kraftaverkum og mildu miskunn sem við þörfnumst.

Það er í húsi Drottins sem við getum umbreyst á æðri og helgari hátt. … Ég fullvissa ykkur um að það breytir okkur algjörlega að hafa anda húss Drottins í okkur. …

Hin viðvarandi og hraða uppbygging mustera mun halda áfram að hvetja okkur, innblása og blessa. Mikilvægara er þó að þegar við breytum undirbúningi okkar fyrir inngöngu í musterið, munum við breyta upplifun okkar í musterinu, sem mun umbreyta lífi okkar utan musterisins. Megi þessi umbreyting veita okkur fullvissu um okkar helgu sáttmála sem við gerðum við Guð gegnum Jesú Krist.

Prenta