Líahóna
Brúa æðstu boðorðin tvö
Maí 2024


Sunnudagssíðdegi

Brúa æðstu boðorðin tvö

Útdráttur

Ljósmynd
veggspjald

Hala niður PDF-skjali

Við skulum kanna tvö æðstu boðorðin, hvort fyrir sig, sem voru opinberuð og komu fram í svari Jesú Krists. Þegar við gerum það, látum þá ímynd hinnar tignarlegu hengibrúar leika fyrir sjónum okkar.

Hið æðsta: Að elska Drottin af öllu hjarta, sálu og huga.

… Að elska Drottin höfðar fyrst til hjarta ykkar – eðlis ykkar. Drottinn biður ykkur að elska af allri sálu ykkar – öllu því sem við erum – og að lokum, að elska af öllum huga ykkar – af vitsmunalegum mætti ykkar. …

Ég get elskað himneskan föður og Jesú Krist, sem síðan leiðir til bænar, ritningarnáms og musteristilbeiðslu. Við elskum föðurinn og soninn með því að greiða tíund, halda hvíldardaginn heilagan, vera dyggðug og skírlíf og hlýðin. …

Að elska Drottin leiðir til eilífrar hamingju!

… Elska til Drottins er ekki fullnægjandi ef við vanrækjum náunga okkar. Þessi elska á við um öll börn Guðs, án tillits til kyns, þjóðfélagsstéttar, kynþáttar, kynhneigðar, tekna, aldurs eða þjóðernis. …

Til að hengibrú geri það sem hún var byggð til að gera, verður virkni turnanna að vera í fullkomnu jafnvægi. Hæfni okkar til að fylgja Jesú Kristi er sömuleiðis háð styrk og krafti okkar til að lifa eftir æðsta og næstæðsta boðorðinu og gæta jafnvægis og tryggðar við bæði. …

Megi hjörtu okkar og hugur lyftast upp í elsku til Drottins og leita út á við í elsku til náunga okkar.

Prenta