Ritningar
Kenning og sáttmálar 65


65. Kafli

Opinberun um bæn gefin með spámanninum Joseph Smith í Hiram, Ohio, 30. október 1831.

1–2, Lyklar Guðs ríkis eru afhentir manni á jörðu, og málstaður fagnaðarerindisins mun sigra; 3–6, Þúsund ára ríki himins mun koma og sameinast ríki Guðs á jörðu.

1 Hlýðið á og takið eftir. Rödd sem þess er sendur er að ofan, máttug og kraftmikil, hljómar til endimarka jarðarinnar, já, rödd sem hrópar til mannanna — Greiðið Drottni veg, gjörið beinar brautir hans.

2 Lyklar Guðs ríkis eru afhentir manni á jörðu, og þaðan skal fagnaðarerindið breiðast út til endimarka jarðar, líkt og steinninn, sem losaður er úr fjallinu án þess að hendur komi nærri, mun áfram velta, uns hann hefur fyllt alla jörðina.

3 Já, rödd hrópar — Greiðið Drottni veg, tilreiðið kvöldmáltíð lambsins, undirbúið komu brúðgumans.

4 Biðjið til Drottins, ákallið hans heilaga nafn, kunngjörið hin undursamlegu verk hans meðal fólksins.

5 Ákallið Drottin, svo að ríki hans breiðist út á jörðunni og íbúar hennar megi veita því viðtöku og vera viðbúnir komandi dögum, þegar mannssonurinn kemur í himni niður, klæddur ljóma dýrðar sinnar, til að mæta því Guðs ríki, sem reist er á jörðu.

6 Megi því ríki Guðs breiðast út, svo að ríki himins megi koma og þú, ó Guð, megir dýrðlegur verða á himni sem á jörðu, og óvinir þínir verði yfirbugaðir, því að þinn er heiðurinn, mátturinn og dýrðin, alltaf og að eilífu. Amen.