Síðustu dagar, síðari dagar Sjá einnig Síðari koma Jesú Krists; Tákn tímanna Tíminn sem við lifum nú. Dagarnir (eða ráðstöfunartíminn) rétt fyrir síðari komu Drottins. Safnist saman, að ég megi birta yður það, sem fyrir yður liggur á komandi tímum, 1 Mós 49:1. Ég veit að lausnari minn lifir, og hann mun síðastur ganga fram á foldu, Job 19:25. Á síðustu dögum mun hús Drottins stofnsett, Jes 2:2. Á síðustu dögum munu koma örðugar tíðir, 2 Tím 3:1–7. Á síðustu dögum munu koma spottarar og afneita síðari komunni, 2 Pét 3:3–7. Ég spái fyrir yður um komu síðustu daga, 2 Ne 26:14–30. Svo mun kirkja mín nefnd á síðustu dögum, já, Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, K&S 115:4. Kristur mun koma á síðustu dögum, HDP Móse 7:60.