Kóróna Sjá einnig Eilíft líf Hringlaga höfuðdjásn þjóðhöfðingja. Það getur verið tákn fyrir himneskt vald, yfirráð og guðdóm. Þeir sem standa stöðugir allt til enda með því að halda öll boð Drottins munu hljóta kórónu eilífs lífs. (Sjá K&S 20:14; HDP Móse 7:56; JS — M 1:1.) Mér er geymdur sveigur réttlætisins, 2 Tím 4:8. Þér munuð öðlast þann dýrðarsveig, sem aldrei fölnar, 1 Pét 5:4. Hinir dauðu sem dóu í Drottni munu meðtaka kórónu réttlætisins, K&S 29:13. Þeir munu hljóta kórónu í híbýlum föður míns, K&S 59:2. Drottinn undirbýr hina heilögu að þeir nái þeirri kórónu sem þeim er fyrirbúin, K&S 78:15. Drottinn hefur heitið hinum heilögu dýrðarkórónu honum til hægri handar, K&S 104:7.