Verk Athafnir manna, góðar eða slæmar. Hver maður verður dæmdur af verkum sínum. Drottinn mun gjalda manninum eftir verkum hans, Okv 24:12. Þannig lýsi ljós yðar meðal mannanna, að þeir sjái góð verk yðar, Matt 5:16 (3 Ne 12:16). Sá einn, er gjörir vilja föður míns, mun ganga inn í himnaríki, Matt 7:21. Trúin er dauð í sjálfri sér, vanti hana verkin, Jakbr 2:14–26. Þeir verða dæmdir af verkunum, 1 Ne 15:32 (Mósía 3:24). Vér vitum, að vér frelsumst fyrir náð, að afloknu öllu, sem vér getum gjört, 2 Ne 25:23. Kenndu henni að þreytast aldrei á góðum verkum, Al 37:34. Það er nauðsyn að menn séu dæmdir eftir verkum sínum, Al 41:3. Af verkum þeirra skuluð þér þekkja þá, Moró 7:5 (K&S 18:38). Ég, Drottinn, mun dæma alla menn samkvæmt verkum þeirra, K&S 137:9.