Námshjálp
Trúskipti, trúskiptingur


Trúskipti, trúskiptingur

Að breyta átrúnaði sínum, hjarta og lífi til þess að taka við og lúta vilja Guðs (Post 3:19).

Trúskipti fela í sér meðvitaða ákvörðun um að láta af fyrri hætti og breytast til að verða lærisveinn Krists. Iðrun, skírn til fyrirgefningar synda, meðtaka heilags anda með handayfirlagningu og stöðug trú á Drottin Jesú Krist fullkomna trúskiptin. Náttúrlegur maður breytist í nýja persónu sem er helguð og hrein, endurfædd í Kristi Jesú (2 Kor 5:17; Mósía 3:19).