Draumur Sjá einnig Opinberun Ein af aðferðum Guðs við að kynna körlum og konum á jörðu vilja sinn. Ekki eru þó allir draumar opinberun. Innblásnir draumar eru ávextir trúar. Hann dreymdi og sá stiga er náði til himins, 1 Mós 28:12. Jósef dreymdi draum, 1 Mós 37:5. Drottinn mun tala við hann í draumi, 4 Mós 12:6. Nebúkadnesar dreymdi draum, Dan 2:1–3. Gamalmenni yðar mun drauma dreyma, Jóel 3:1 (Post 2:17). Engill Drottins vitjaði hans í draumi, Matt 1:20 (Matt 2:19). Lehí ritaði um margt er hann hafði séð í draumum, 1 Ne 1:16. Lehí dreymdi draum, 1 Ne 8.