Leynisamtök, samsæri Sjá einnig Gadíanton ræningjarnir; Kain Samtök manna sem bindast eiði um að vinna að illum tilgangi hópsins. Faðir lyginnar leiðir mannanna börn til leyndra myrkraverka, 2 Ne 9:9. Þess vegna verð ég að tortíma myrkraverkum, 2 Ne 10:15. Dómar Guðs féllu yfir þessa þjóna leynisamtaka, Al 37:30. Gadíanton átti sök á næstum algjöru falli Nefíþjóðarinnar, He 2:4–13. Satan hafði þau áhrif á þjóðina að þeir gengust undir leynilega eiða og sáttmála, He 6:21–31. Drottinn vinnur ekki í leyndum samtökum, Et 8:19. Þjóðum sem styðja leynisamtök mun tortímt, Et 8:22–23. Þau höfnuðu öllu sem spámennirnir sögðu, vegna leynisamtaka sinna, Et 11:22. Frá því á dögum Kains voru uppi leynisamtök, HDP Móse 5:51.