Þjónusta við sjúka Sjá einnig Handayfirlagning; Lækna, lækningar; Olía; Prestdæmi; Smyrja Blessun veitt hinum sjúku af mönnum sem hafa prestdæmi Melkísedeks og er þá notuð helguð olía. Legg hönd þína yfir hana, Matt 9:18. Jesús lagði hendur yfir nokkra sjúka og læknaði þá, Mark 6:5. Postular Krists smurðu marga sjúka með olíu og læknuðu þá, Mark 6:13. Öldungarnir skulu smyrja hina sjúku með olíu og lækna þá, Jakbr 5:14–15. Þér skuluð ekki lækna hina sjúku nema þeir sem þrá það beiðist þess, K&S 24:13–14. Öldungarnir skulu leggja hendur yfir hina sjúku, K&S 42:44. Legg hendur þínar yfir hina sjúku og þeir munu heilir verða, K&S 66:9.