Helaman, sonur Alma Sjá einnig Alma, sonur Alma; Antí-Nefí-Lehítar; Helaman, synir hans Í Mormónsbók, elsti sonur Alma, sonar Alma (Al 31:7). Helaman var spámaður og herforingi. Alma fól syni sínum Helaman í hendur heimildaskrár þjóðar sinnar ásamt töflum Jaredíta, Al 37:1–2, 21. Alma bauð Helaman að halda áfram að rita sögu þjóðarinnar, Al 45–62. Helaman endurreisti kirkjuna, Al 45:22–23. Tvö þúsund ungir Ammónítastríðsmenn kusu að lúta stjórn Helamans, Al 53:19, 22. Helaman og hinir ungu Ammónítastríðsmenn börðust við Lamaníta og voru varðveittir fyrir trú, Al 57:19–27.