Vísar til alls mannkyns, bæði karlkyns og kvenkyns. Allir menn og konur eru raunverulega andlegir afkomendur himnesks föður. Þegar þau fæðast til jarðlífs fá þau jarðneska dauðlega líkami. Þeir líkamir voru skapaðir í Guðs mynd (1 Mós 1:26–27 ). Karlar og konur, sem eru trúföst og meðtaka nauðsynlegar helgiathafnir, halda sáttmála sína og fylgja boðum Guðs, munu öðlast upphafningu og verða sem Guð.
Maðurinn lifir svo að hann megi gleði njóta, 2 Ne 2:25 .
Hinn náttúrlegi maður er óvinur Guðs, Mósía 3:19 .
Hvers konar menn ættuð þér þess vegna að vera, 3 Ne 27:27 .
Ekki er það verk Guðs sem ónýtist, heldur verk mannanna, K&S 3:3 .
Þú átt ekki að óttast manninn meira en Guð, K&S 3:7 (K&S 30:11 ; 122:9 ).
Allir skapaðir hlutir eru ætlaðir manninum til heilla og gagns, K&S 59:18 .
Ég veit að maðurinn er ekkert, HDP Móse 1:10 .
Verk Guðs og dýrð er — að gjöra ódauðleika og eilíft líf mannsins að veruleika, HDP Móse 1:39 .
Maður, andabarn himnesks föður
Þeir féllu fram á ásjónur sínar og sögðu, Guð, Guð lífsandans í öllu holdi, 4 Mós 16:22 (4 Mós 27:16 ).
Þér eruð börn Drottins, Guðs yðar, 5 Mós 14:1 .
Þér eruð guðir og allir saman synir Hins hæsta, Sálm 82:6 .
Þér eruð synir hins lifanda Guðs, Hós 1:10 .
Eigum vér ekki allir hinn sama föður? Hefur ekki einn Guð skapað oss, Mal 2:10 .
Vér erum Guðs ættar, Post 17:29 .
Sjálfur andinn vitnar með vorum anda, að vér erum Guðs börn, Róm 8:16 .
Verum undirgefnir föður andanna, Hebr 12:9 .
Allir íbúar heimanna eru getnir synir og dætur Guðs, K&S 76:24 .
Maðurinn var í upphafi hjá föðurnum, K&S 93:23, 29 .
Guð skapaði alla menn andlega, áður en þeir urðu til á jörðu, HDP Móse 3:5–7 .
Ég er Guð. Ég gjörði heiminn og mennina áður en þeir voru í holdinu, HDP Móse 6:51 .
Maður, með möguleika til að verða líkur himneskum föður
Verið því fullkomnir, eins og faðir yðar himneskur er fullkominn, Matt 5:48 (3 Ne 12:48 ).
Er ekki skrifað í lögmáli yðar að þér séuð guðir, Jóh 10:34 (K&S 76:58 ).
Vér getum orðið erfingjar Guðs og samarfar Krists, Róm 8:17 .
Ef þú ert sonur, þá ert þú líka erfingi að ráði Guðs, Gal 4:7 .
Þegar hann birtist munum við verða honum líkir, 1 Jóh 3:2 .
Þann er sigrar mun ég láta sitja í hásæti mínu, Op 3:21 .
Þeir sem erfa himneska ríkið eru guðir, já, synir Guðs, K&S 76:50, 58 .
Þá verða þau guðir, vegna þess að þau hafa allt vald, K&S 132:20 .