Spákona Sjá einnig Spádómur, spá Kona sem hefur meðtekið vitnisburð um Jesú og hefur opinberunaranda. Spákona hefur ekki prestdæmi eða lykla þess. Þótt einungis fáar konur í ritningunum séu nefndar spákonur, spáðu þó margar, svo sem Rebekka, Hanna, Elísabet og María. Mirjam var kölluð spákona, 2 Mós 15:20. Debóra var kölluð spákona, Dóm 4:4. Hulda var kölluð spákona, 2 Kon 22:14 (2 Kro 34:22). Anna var kölluð spákona, Lúk 2:36.