Kerúb Verur sem eru himneskrar sköpunar, en sköpulag þeirra er ekki nákvæmlega þekkt. Kerúbar hafa fengið þá köllun að standa vörð um helga staði. Drottinn setti kerúbana til að geyma vegarins að lífsins tré, 1 Mós 3:24 (Al 12:21–29; 42:2–3; HDP Móse 4:31). Táknrænar myndir af kerúbum voru settar á náðarsætið, 2 Mós 25:18, 22 (1 Kon 6:23–28; Hebr 9:5). Kerúbar eru nefndir í sýnum Esekíels, Esek 10; 11:22.