Heilagur Sjá einnig Kirkja Jesú Krists; Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu; Kristnir Trúfastur meðlimur Kirkju Jesú Krists. Safnið saman dýrkendum mínum, Sálm 50:5. Sál gjörði hinum heilögu í Jerúsalem margt illt, Post 9:1–21. Pétur kom og til hinna heilögu, sem áttu heima í Lýddu, Post 9:32. Ég heilsa öllum Guðs elskuðu í Róm, sem heilagir eru samkvæmt köllun, Róm 1:7. Þér eruð samþegnar hinna heilögu, Ef 2:19–21. Ég sá kirkju lambsins sem voru hinir heilögu Guðs, 1 Ne 14:12. Hinn náttúrlegi maður er óvinur Guðs nema hann verði heilagur fyrir friðþægingu Krists, Mósía 3:19. Ég, Drottinn, hef blessað landið til gagns fyrir mína heilögu, K&S 61:17. Satan á í stríði við Guðs heilögu, K&S 76:28–29. Vinnið ötullega að því að búa hina heilögu undir stund dómsins, sem koma skal, K&S 88:84–85. Hinir heilögu skulu gefa af eigum sínum til hinna fátæku og aðþrengdu, K&S 105:3. Fyrrnefnd embætti hef ég gefið til stjórnunar og til fullkomnunar mínum heilögu, K&S 124:143 (Ef 4:12).