Þriðji meðlimur Guðdómsins (1 Jóh 5:7 ; K&S 20:28 ). Hann er andavera, hefur ekki líkama af holdi og beinum (K&S 130:22 ). Heilagur andi er oft kallaður andinn eða andi Guðs.
Heilagur andi gegnir nokkrum mikilvægum hlutverkum í sáluhjálparáætluninni. (1) Hann ber vitni um föðurinn og soninn (1 Kor 12:3 ; 3 Ne 28:11 ; Et 12:41 ). (2) Hann opinberar sannleiksgildi allra hluta (Jóh 14:26 ; 16:13 ; Moró 10:5 ; K&S 39:6 ). (3) Hann helgar þá sem hafa iðrast og látið skírast (Jóh 3:5 ; 3 Ne 27:20 ; HDP Móse 6:64–68 ). (4) Hann er heilagur andi fyrirheitsins (K&S 76:50–53 ; 132:7, 18–19, 26 ).
Kraftur heilags anda getur komið yfir menn fyrir skírn og vitnað um sannleiksgildi fagnaðarerindisins. En rétturinn til að hafa stöðuga samfylgd heilags anda, hvenær sem viðkomandi er verðugur, er gjöf sem aðeins fæst með handayfirlagningu prestdæmishafa Melkísedeks eftir heimilaða skírn inn í hina sönnu Kirkju Jesú Krists.
Jesús kenndi að allar syndir fengjust fyrirgefnar, nema lastmæli gegn heilögum anda (Matt 12:31–32 ; Mark 3:28–29 ; Lúk 12:10 ; Hebr 6:4–8 ; K&S 76:34–35 ).
Postulunum var heimilað að skíra í nafni föður, sonar og heilags anda, Matt 28:19 .
Heilagur andi mun kenna yður allt, Jóh 14:26 .
Helgir menn töluðu, knúðir af heilögum anda, 2 Pét 1:21 .
Nefí var leiddur af andanum, 1 Ne 4:6 .
Leyndardómar Guðs munu afhjúpast fyrir kraft heilags anda, 1 Ne 10:17–19 .
Heilagur andi mun sýna yður allt, sem yður ber að gjöra, 2 Ne 32:5 .
Fyrir kraft heilags anda getið þér fengið að vita sannleiksgildi allra hluta, Moró 10:5 .
Heilagur andi mun segja þér í huga þínum og hjarta, K&S 8:2 .
Andinn leiðir þig til góðra verka, K&S 11:12 .
Heilagur andi veit allt, K&S 35:19 .
Heilagur andi mun kenna þér friðsæld ríkisins, K&S 36:2 (K&S 39:6 ).
Ef þér meðtakið ekki andann munuð þér ekki kenna, K&S 42:14 .
Heilagur andi ber vitni um föðurinn og soninn, K&S 42:17 (1 Kor 12:3 ; 3 Ne 11:32, 35–36 ).
Sumum er gefið fyrir heilagan anda að vita, að Jesús Kristur er sonur Guðs, K&S 46:13 .
Allt sem þeir segja, hvattir af heilögum anda, er ritning, K&S 68:4 .
Heilögum anda skal úthellt til að bera vitni um allt það, er þér mælið, K&S 100:8 .
Heilagur andi verður þér stöðugur förunautur, K&S 121:45–46 .