Innblástur, guðleg andagift Sjá einnig Heilagur andi; Opinberun Guðleg leiðsögn veitt mönnum af Guði. Innblástur berst fyrir andann með ýmsum hætti til huga og hjarta mannsins. Eftir eldinn heyrðist blíður vindblær hvísla, 1 Kon 19:12. Andinn heilagi mun kenna yður allt og minna yður á allt það, sem ég hef sagt yður, Jóh 14:26. Andi sannleikans mun leiða yður í allan sannleikann, Jóh 16:13. Andinn leiddi mig, og ég vissi ekki fyrirfram, hvað gjöra skyldi, 1 Ne 4:6. Rödd Drottins kom í huga minn, Enos 1:10. Allt sem hvetur og lokkar til að gjöra gott er innblásið af Guði, Moró 7:13–16. Veitti ég þér ekki hugarró varðandi þetta, K&S 6:23. Ég mun segja þér í huga þínum og hjarta, K&S 8:2. Andi minn mun upplýsa hug þinn og fylla sál þína gleði, K&S 11:13. Þér skal gefið á sömu stundu hvað segja skal og skrifa, K&S 24:6 (K&S 84:85). Hin lága hljóðláta rödd hvíslar og smýgur gegnum allt, K&S 85:6.