Nefí, sonur Helamans Sjá einnig Helaman, sonur Helamans; Lehí, trúboði Nefíta Í Mormónsbók, mikill spámaður Nefíta og trúboði. Hann var eldri sonur Helamans, He 3:21. Var tilnefndur yfirdómari, He 3:37. Hann og bróðir hans Lehí sneru mörgum Lamanítum til fagnaðarerindisins, He 5:18–19. Var umkringdur eldi og leystur úr fangelsi, He 5:20–52. Baðst fyrir í garðturni sínum, He 7:6–10. Upplýsti að yfirdómarinn hefði verið myrtur, He 8:25–28; 9:1–38. Var veitt mikið vald frá Drottni, He 10:3–11. Bað Drottin um hungursneyð og að endir yrði á hana bundinn, He 11:3–18.