Góði hirðirinn Sjá einnig Jesús Kristur Jesús Kristur er góði hirðirinn. Táknrænt séð eru fylgjendur hans líkir sauðum sem Jesús vakir yfir. Drottinn er minn hirðir, Sálm 23:1. Hann mun annast hjörð sína eins og fjárhirðir, Jes 40:11. Þannig mun ég heimta sauði mína, Esek 34:12. Ég er góði hirðirinn, Jóh 10:14–15. Jesús er hinn mikli hirðir sauðanna, Hebr 13:20. Hann kastar tölu á sauði sína og þeir þekkja hann, 1 Ne 22:25. Góði hirðirinn kallar á yður í sínu eigin nafni, sem er Kristur, Al 5:38, 60. Það mun verða ein hjörð og einn hirðir, 3 Ne 15:21 (Jóh 10:16).