Abinadí Sjá einnig Píslarvottur, píslarvætti Nefítaspámaður í Mormónsbók. Spáði að Guð mundi refsa þjóð hins illa konungs Nóa ef hún iðraðist ekki, Mósía 11:20–25. Var fangelsaður fyrir að spá fyrir um tortímingu Nóa konungs og þjóðar hans, Mósía 12:1–17. Fræddi hina spilltu presta Nóa konungs um Móselögmálið og Krist, Mósía 12–16. Alma hinn eldri trúði og ritaði orð hans, Mósía 17:2–4. Var brenndur til dauða af Nóa konungi, Mósía 17:20.