Þegar andi Drottins orsakar máttug umskipti í hjarta manns svo að hugur hans beinist ekki lengur til illra verka, en sækist fremur eftir því sem Guðs er.
Þeir sem trúa á nafn Krists eru ekki af blóði bornir, heldur af Guði fæddir, Jóh 1:12–13 .
Enginn kemst inn í Guðs ríki nema hann fæðist af vatni og anda, Jóh 3:3–7 .
Við getum endurfæðst af orði Guðs, 1 Pét 1:3–23 .
Hver sem er af Guði fæddur syndgar ekki framar, ÞJS, 1 Jóh 3:9 .
Hver sem er af Guði fæddur sigrast á heiminum, 1 Jóh 5:4 .
Þeir sem eru af Kristi fæddir gjöra sáttmála við Guð, Mósía 3:19 ; 5:2–7 .
Allt mannkyn verður að endurfæðast; já, fæðast af Guði, Mósía 27:25–26 (Al 5:49 ).
Hafið þér fæðst andlega af Guði, Al 5:12–19 .
Séuð þér ekki endurfæddir, getið þér ekki erft Guðs ríki, Al 7:14 .
Þeir sem orðum mínum trúa, skulu endurfæðast af mér, já, af vatni og anda, K&S 5:16 .