Prestaslægð Prédikun manna sem telja sig ljós fyrir heiminn en bera eigin hag fyrir brjósti og sækjast eftir hylli heimsins; þeir leita ekki velferðar Síonar (2 Ne 26:29). Gætið þeirrar hjarðar sem Guð hefur falið yður, ekki sakir vansæmilegs ávinnings, 1 Pét 5:2. Kirkjur sem sækjast eftir hagnaði hljóta að verða beygðar í duftið, 1 Ne 22:23 (Morm 8:32–41). Vegna prestaslægðar og misgjörða mun Jesús verða krossfestur, 2 Ne 10:5. Væri prestaslægð þröngvað upp á þessa þjóð yrði það henni til algjörrar tortímingar, Al 1:12. Þjóðirnar munu fyllast alls kyns prestaslægð, 3 Ne 16:10.