Tækifæri, fyrir þá sem dáið hafa án þess að meðtaka frelsandi helgiathafnir fagnaðarerindisins, til þess að fá þær helgiathafnir framkvæmdar fyrir sig í musterum af verðugum lifandi meðlimum kirkjunnar. Hinum dánu er kennt fagnaðarerindið í andaheiminum og þeir geta tekið á móti helgiathöfnum sem framkvæmdar eru fyrir þá hér á jörðu.
Trúfastir meðlimir kirkjunnar leita uppi og undirbúa ættarsögu fjölskyldunnar til að finna nöfn og fæðingardaga forfeðra sinna og mæðra svo að unnt sé að framkvæma frelsandi helgiathafnir fyrir þau.