2021
Finna elsku Krists
Mars 2021


Frá vini til vinar

Finna elsku Krists

Úr viðtali við Haley Yancey.

Friend Magazine, 2021/03-04 Mar/Apr

Á uppvaxtarárum mínum í Japan, var mér gefin Biblía í skólanum. Í henni stóðu ensk og japönsk orð hlið við hlið. Skólastjórinn okkar sagði okkur að nota hana til að læra ensku.

Þegar ég las hana, þá lærði ég um Jesú. Hver er þessi persóna, sem er svo uppfull af elsku? velti ég fyrir mér. Orðin sem hann sagði gerðu mig hamingjusaman. Ég vildi vita meira um hann.

Stuttu síðar hitti ég trúboðana. Þeir gáfu mér Mormónsbók og báðu mig að lesa hana og biðjast fyrir vegna hennar. Ég unni því líka að lesa um Jesú í Mormónsbók. Ég baðst fyrir og fann að hún var sönn.

Enginn í fjölskyldu minni vildi læra um kirkjuna. Jesús kenndi að við eigum að virða foreldra okkar, en foreldrar mínir vildu ekki að ég gengi í kirkjuna. Það var erfitt.

Ég sagði foreldrum mínum hvernig mér leið. Ég sagði þeim frá bænum mínum. Þau skildu mig ekki. Þau furðuðu sig á því að ég skyldi vilja yfirgefa trú þeirra.

Ég hélt áfram að reyna. Um síðir sögðu foreldrar mínir að ég mætti skírast. Mörgum árum síðar skírðist móðir mín líka.

Ég veit að ég var blessaður fyrir að vilja fylgja Jesú. Ég hef unun af því að læra um hann og ég veit að ef ég fylgi honum, hefur það blessanir í för með sér.

Jesús vill að ég fylgi honum

coloring page of Jesus being baptized

Jesús vill að við fylgjum honum með því að láta skírast. Lesið versin. Litið síðan inn í samsvarandi form.

  1. Kenning og sáttmálar 19:23

  2. 2. Nefí 31:12

  3. Matteus 3:16‒17

  4. Kenning og sáttmálar 33:11

  5. Alma 7:15