Sýna og segja
Við fórum í kirkju út í sveit og sáum endur og hænur! Ég er þakklátur fyrir dýrin sem Guð skapaði.
Boris M., 9 ára, Corrientes, Argentínu
Ég kenndi fjölskyldu minni um að skína eins og stjarna þegar við höfðum kirkju heima. Allir gerðu stjörnu og skrifuðu á hana hvernig þau skína.
David A., 8 ára, Flórída, Bandaríkjunum
Ég fylgi fordæmi Jesú Krists með því að sýna kærleika og hjálpa öðrum.
Marjorie C., 7 ára, Merseyside, Englandi
Ég fann ekkert sérstakt um leið og ég skírðist, en pabbi minn sagði mér að einn daginn myndi mér finnast það sérstakt. Nú finnst mér það sérstakt.
Aidan T., 9 ára, Alaska, Bandaríkjunum
Ég fékk þá tilfinningu í hádegismatnum að ég ætti ekki að leika mér í rimlunum í frímínútum. Ég hunsaði tilfinninguna og lék mér samt í rimlunum. Ég datt af þeim og handleggsbrotnaði. Ég veit að heilagur andi muni gefa mér hljóðlátar viðvaranir.
McKade W., 11 ára, Washington, Bandaríkjunum
Besta vinkona mín hefur gengið í gegnum mikið og ég bjó til nokkuð sérstakt handa henni fyrir páskana. Mér leið vel hið innra þegar ég gaf henni það, vitandi að ég var að hjálpa vinkonu minni.
Layla P., 10 ára, Tasmaniu, Ástralíu
Sakramentið
Af sakramentinu tökum við
og biðjum himnaföður um sátt og frið,
að lauga okkur sorgum og syndum frá,
svo hvern sunnudag við byrjum fersk og frá.
Við vatnið drekkum og brauðið etum,
svo ávallt nafnið hans við metum.
Við ætíð skulum minnst Jesú.
Hann dó svo lifað getum við í trú.
Madelyn R., 9 ára, Utah, Bandaríkjunum
Sophia A., 6 ára, Paraná, Brasilíu
Hlýð á hann, Scarlet H., 7 ára, Alberta, Kanada
Hann er upprisinn, Eliza S., 10 ára, Idaho, Bandaríkjunum
Ammon H., 10 ára, Idaho, Bandaríkjunum
Joshua M., 6 ára, Hesse, Þýskalandi