2021
Kristur færir frið
September 2021


Ég get spilað það!

Kristur færir frið

Íhugult [fjórðupartsnóta] =

Ljósmynd
sheet music

1. Kristur færir frið,

frelsi‘ og lífsins grið.

Gæsku himins gnægð er af,

því hann líf sitt gaf.

Hlýðið orð hans á,

helgast af þeim má.

Ef hér löng er lausnarbið,

Kristur færir frið.

2. Kristur færir frið,

fús hann leggur lið,

lífsins vegi leiðir á,

líknar sárum frá,

heyrir hugans fár,

þerrar hjartans tár.

Ef við himins höldum sið,

Kristur færir frið.

Viðlag: Hann veitir von,

er lífsins lind.

Hann veitir vörn

og styrk gegn synd.

Hann okkur verndar

frá sterkum vind.

Ef fjötruð erum við,

Kristur færir frið.

Annar endir: Ef fjötruð erum við,

Kristur færir frið.

Prenta