Námshjálp
ÞJS, Mattheus 17


ÞJS, Matteus 17:10–14. Samanber Matteus 17:11–13

Jesús kennir um tvo Elía, annar til að undirbúa og hinn til að endurreisa.

10 Og Jesús svaraði og sagði við þá: Víst kemur Elía fyrst og endurreisir allt, eins og spámennirnir hafa ritað.

11 Og enn segi ég yður að Elía er þegar kominn, sá sem það er ritað um. Sjá, ég sendi sendiboða minn, og hann mun greiða mér veg; og þeir þekktu hann ekki og gjörðu honum allt sem þeir vildu.

12 Eins mun og Mannssonurinn píslir þola af hendi þeirra.

13 En ég spyr yður: Hver er Elía? Sjá, þetta er Elía, sem ég sendi til þess að greiða mér veg.

14 Þá skildu lærisveinarnir, að hann talaði við þá um Jóhannes skírara, og einnig annan sem koma ætti og endurreisa allt, eins og ritað er af spámönnunum.

Prenta