Námshjálp
ÞJS, Matteus 9


ÞJS, Matteus 9:18–21. Samanber Matteus 9:16–17

Jesús hafnar skírn farísea; hún hefur ekkert gildi, því að þeir viðurkenna hann ekki. Hann lýsir því yfir, að hann sé sá, sem gaf Móselögmálið.

18 Þá sögðu farísearnir við hann: Hvers vegna vilt þú ekki taka á móti okkur með skírn okkar. Þú sérð að við höldum allt lögmálið?

19 En Jesús sagði við þá: Þér haldið ekki lögmálið. Ef þér hafið haldið lögmálið, hefðuð þér tekið á móti mér, því að ég er sá sem lögmálið gaf.

20 Ég tek ekki á móti yður með skírn yðar, því að hún gagnar yður ekkert.

21 Því að þegar hið nýja kemur, er hið gamla lagt til hliðar.

Prenta