Námshjálp
ÞJS, Matteus 27


ÞJS, Matteus 27:3–6. Samanber Matteus 27:3–5; Postulasagan 1:18

Dauða Júdasar lýst.

3 Þegar Júdas, sem sveik hann, sá að hann var dæmdur sekur, iðraðist hann og skilaði æðstu prestunum og öldungunum aftur silfurpeningunum þrjátíu —

4 Og mælti: Ég drýgði synd, ég sveik saklaust blóð.

5 Og þeir sögðu við hann: Hvað varðar oss um það? Sjá þú fyrir því, syndirnar eru þínar.

6 Og hann fleygði silfrinu inn í musterið, hélt brott og hengdi sig í tré einu. Og samstundis féll hann niður og iður hans spýttust út, og hann dó.

Prenta