2023
Hjálpa við verk himnesks föður
Janúar 2023


Frá vini til vinar

Hjálpa við verk himnesks föður

Úr viðtali við Richard M. Romney.

Vissuð þið að ykkur er boðið að hjálpa himneskum föður við hið mikilvæga verk hans? Það verk er til að hjálpa öllum börnum hans að snúa aftur til dvalar hjá honum (sjá HDP Móse 1:39). Þið getið hjálpað með því að gera fjóra hluti: Lifa, annast, bjóða og sameina.

Lifið eftir fagnaðarerindi Jesú Krists. Þið lifið eftir fagnaðarerindinu þegar þið fylgið fordæmi Jesú. Þið getið beðist fyrir, lesið ritningarnar eða sögubækur úr ritningunum, fyrirgefið öðrum og farið í kirkju.

Annist hina þurfandi. Þið getið setið hjá einhverjum sem er einmana. Þið getið líka hringt í vin sem er veikur og hughreyst hann.

Bjóðið öllum að taka á móti fagnaðarerindinu. Þið getið boðið vinum að koma í kirkju eða í Barnafélagsverkefni. Þið getið boðið vinum að koma í skírn ykkar.

Sameinið fjölskyldur um eilífð. Þið getið rætt við afa ykkar og ömmur til að læra um líf þeirra. Þið getið verið friðflytjendur á heimili ykkar. Þið getið búið ykkur undir að fara í musterið.

Ég lofa því að þið munuð finna gleði er þið reynið að lifa, annast, bjóða og sameina á heimili ykkar, í skólanum og í Barnafélaginu. Himneskur faðir elskar ykkur! Þið getið líka hjálpað við hið mikilvæga verk hans.

Myndskreyting: Augusto Zambonato

Prenta