2022
Heiðvirð einkunn
September 2022


„Heiðvirð einkunn,“ Til styrktar ungmennum, sept. 2022.

Sterkur grundvöllur

Síðari daga heilög ungmenni byggja líf sitt á bjargi Jesú Krists (sjá Helaman 5:12).

Heiðvirð einkunn

Ljósmynd
stúlka í skóla

Myndskreyting eftir Katie Payne

Í skólanum vildi efnafræðikennarinn minn stuðla að heiðarleika í bekknum. Hún sagði okkur að við mættum fara yfir eigin próf og tilkynna eigin einkunnir. Þegar ég skoðaði svörin mín, freistaðist ég til að bæta einu stigi við einkunnina mína. Ég þurfti bara þetta eina stig í viðbót til að ná prófinu. Ég sat og hugsaði málið í nokkra stund.

Á meðan í sat þarna hugsandi, minntist ég tilvitnunar í Gordon B. Hinckley forseta (1910–2008), sem ég hafði sett aftan á persónuskilríkin mín: „Hve eyðileggjandi getur smávegis óheiðarleiki verið. … Stofnun gæti staðið það af sér að tapa fjármunum, en einstaklingur má ekki við því að tapa sjálfsvirðingunni“ („I Believe,“ Ensign, ágúst 1992, 5). Undir tilvitnuninni var setningin: „Ef frelsarinn stæði mér við hlið, myndi ég gera það sem ég geri?“

Ég fann frið og hamingju þegar ég vissi hvað ég ætti að gera. Ég breytti ekki falleinkunninni minni, en ég vissi að ég hefði staðist mikilvægara próf – próf heiðarleikans – og ég var stolt af ákvörðun minni.

Natalie A., Filippseyjum

Prenta