Sýna og segja
Ég spurði mömmu hvort ég mætti fara á vespuna mína. Hún sagði að ég mætti keyra henni kringum hverfið. Ég fór aðeins lengra og villtist. Ég varð hræddur og fór með bæn. Seinna sá ég kunnuglega staði og vissi að ég var nálægt heimili mínu. Ég er þakklátur fyrir að himneskur faðir hjálpaði mér.
Jack S., 9 ára, Masovia, Póllandi
Ég ákvað að láta skírast og er glöð að ég lét verða af því! Það er mikilvægt að taka réttar ákvarðanir.
Alicia P., 9 ára, Masovia, Póllandi
Ég veit að ég valdi rétt og að ég var að fylgja Jesú Kristi þegar ég lét skírast. Það veitti mér gleði og hlýju eftir á. Ég elska lausnara minn.
Zion M., 9 ára, Waikato, Nýja Sjálandi
Pabbi minn er hirðisþjónn blinds manns. Mig langaði að gera eitthvað fyrir hann. Pabbi minn hjálpaði mér að stinga út sérstök skilaboð fyrir hann á pappa svo að hann gæti þreifað þau með fingrum sínum. Þar stóð: „Jesús elskar þig.“ Ég fór með pabba mínum að gefa honum skilaboðin. Maðurinn varð hissa og glaður þegar hann þreifaði eftir stöfunum.
Amber F., 6 ára, Utah, Bandaríkjunum
Okkur fannst við vera eins og Nefí þegar við bjuggum til bogana okkar.
Neil og Aaron H., 8 og 10 ára, Alaska, Bandaríkjunum.
Skólinn minn var með fjarkennslu í smá tíma út af Kóvíd-19. Ég bjó til líkan af Nefítamusteri á milli kennslustunda.
Samuel J., 9 ára, Ohio, Bandaríkjunum
Við elskum frelsara okkar og höfum hann ávallt í huga.
Vianca og Avril V., 10 og 6 ára, Cundinamarca, Kólumbíu.
Meredith B., 7 ára, Norður-Karolínu, Bandaríkjunum
„Ég ann musterinu,“ Clara B., 11 ára, Minnesota, Bandaríkjunum
„Síðari koman,“ Santiago C., 11 ára, Santiago, Síle
Emerson G., 8 ára, Washington, Bandaríkjunum