Sögur úr ritningunum
Vísdómsorðið
Joseph Smith hélt fundi til að kenna fólki um fagnaðarerindið. Stundum reyktu menn og tuggðu tóbak.
Þetta olli Emmu Smith áhyggjum. Reykurinn og tóbakið var sóðalegt og það var eitthvað ekki í lagi með þetta. Emma og Joseph veltu því fyrir sér hvað Guði finndist um þetta.
Joseph fór með bæn og Drottinn svaraði. Drottinn varaði meðlimi kirkjunnar við reykingum og tóbaksnotkun. Hann sagði að þetta væri ekki gott fyrir líkama okkar. Hann varaði þá einnig við því að drekka te, kaffi eða áfengi.
Guð sagði að við ættum að neyta ávaxta, grænmetis og annarra hollra fæðuefna. Við köllum þessa kenningu Vísdómsorðið.
Ég get lifað eftir Vísdómsorðinu. Himneskur faðir mun blessa mig er ég annast líkama minn vel.