2022
Af hverju eru ekki kraftaverk nú á tímum eins og í ritningunum?
Júlí 2022


„Af hverju eru ekki kraftaverk nú á tímum eins og í ritningunum?“ Til styrktar ungmennum, júlí 2022.

Kjarni málsins

Af hverju eru ekki kraftaverk nú á tímum eins og í ritningunum?

Ljósmynd
Jesús læknar blindan mann

Ritningarnar geyma fjölda frásagna af kraftaverkum. Sum þeirra eru nokkuð stór og áhrifamikil, eins og að kljúfa Rauðahafið eða reisa einhvern upp frá dauðum. Hvað með okkar tíma? Gerast kraftaverkin enn?

Já, þau gera það. Við heyrum ekki alltaf um þau, en kraftaverk gerast enn stöðugt í lífi fólks.

Öldungur Ronald A. Rasband í Tólfpostulasveitinni, hefur sagt: „Mörg ykkar hafa séð kraftaverk, fleiri en ykkur er ljóst. Þau gætu virst smá. … Stærðin er þó ekki skilgreinandi fyrir kraftaverk, heldur að Guð gerði það“ (aðalráðstefna, apríl 2021).

Öll hjálp Guðs gæti kallast kraftaverk. Margir upplifa kraftaverk. Þetta fólk miðlar stundum sögum sínum, en oft varðveitir það helgi þeirra – á milli sín og Guðs.

Hafið í huga þessa tvo mikilvægu hluti um kraftaverk: (1) Kraftaverk berast aðeins þegar fólk hefur trú og (2) kraftaverk gerast að vilja og tímasetningu Drottins. Við getum ekki stjórnað því hvernig eða hvenær, en kraftaverk Drottins gerast, jafnvel á okkar tíma. Jafnvel fyrir ykkur.

Prenta