„Ákvörðunin,“ Til styrktar ungmennum, júlí 2022. Kom, fylg mér 1. Konungabók 18:17–40 Ákvörðunin Eric B. Murdock samdi Spencer Hale myndskreytti Hey, Ben, hvernig gengur með bókarumsögnina? Bókarumsögnina? Já, þeirri sem á að skila á morgun! Ó nei, ég gleymdi henni gjörsamlega! Engar áhyggjur. Ég afritaði umsögnina af vefsíðu. Það var svo auðvelt! Þú ættir að gera það líka. Ætti ég að afrita af vefsíðunni? Ég vil fá góða einkunn, en það er eitthvað rangt við þetta. Hæ, brósi. Hvernig gengur? Ég þarf að skila bókarumsögninni á morgun en gleymdi henni algjörlega. Ég vil fá góða einkunn, en held ekki að ég nái henni án þess að svindla. Þetta er líka frekar stórt verkefni. Það gæti dregið niður lokaeinkunnina mína í faginu. Veistu hvað, ég las eitthvað um daginn sem ég held að gæti hjálpað þér. Skoðaðu það. Elía spámaður talaði til íbúa Ísraelsríkis á Karmelfjalli. Akab konungur og spámenn hans leiddu fólkið í ranglæti, því þeir létu þá fylgja falsguðinum Baal. „Hversu lengi ætlið þið að haltra til beggja hliða? Ef Drottinn er Guð, fylgið honum. En ef Baal er Guð, þá fylgið honum“ (1 Konungabók 18:21). „Ef Drottinn er Guð, fylgið honum.“ … Ég held ég viti hvað ég á að gera. Daginn eftir. Ég fæ kannski ekki hæstu einkunn. Mér líður þó vel, vitandi það að ég hafi valið rétt.