2022
Tengjast
Júlí 2022


„Tengjast,“ Til styrktar ungmennum, júlí 2022.

Tengjast

Ana Julia A.

17, São Paulo, Brasilíu

Ljósmynd
stúlka

Ljósmynd eftir Leonardo Conceição Motta

Ég bý á þéttbýlasta svæði í landinu mínu. Ég elska að búa hérna og að uppgötva nýja staði með fjölskyldu minni. Ég bý með foreldrum mínum, yngri systur og hundinum okkar, Meghan. Ég elska að verja tíma með þeim. Við hlæjum mikið og reynum að gera nýja og áhugaverða hluti. Sumt líkar okkur betur en annað, en reynslan verður hjá okkur að eilífu.

Ég er á síðasta ári í skólanum og bý mig undir lokaprófin. Ég er svolítið stressuð, en treysti því að Drottinn hjálpi mér í gegnum þau.

Mér finnst dásamlegt að sækja kirkju alla sunnudaga. Það er fullt af ungu fólki í deildinni minni, þannig að viðburðirnir eru skemmtilegir. Ungmennin umhverfis mig hjálpa mér að standa styrk í fagnaðarerindinu. Ég get séð sterka trú þeirra.

Ég bý mig undir að þjóna í trúboði. Ég vil miðla fagnaðarerindinu eins og trúboðar gerðu við fjölskylduna mína. Ég veit það mun breyta lífi þeirra og mínu að eilífu. Ég er þakklát fyrir að vita að ég get átt eilífa fjölskyldu.

Prenta