2023
Tengjast
Janúar 2023


„Tengjast,“ Til styrktar ungmennum, jan. 2023.

Tengjast

Tojonirina R.

17 ára, Madagaskar

Ljósmynd
piltur

Ljósmynd: Valisoa Rakoto

Ég heiti Tojonirina og er frá Antananarivo, Madagaskar. Ég elska að hlusta á afslappandi tónlist, lesa bækur og spila körfubolta og fótbolta.

Þegar ég var átta ára ákvað ég að láta skírast. Þegar mér var dýft ofan í vatnið, fann ég sérstaka hamingju sem kom frá andanum. Stuttu eftir skírnina lést móðir mín. Ég upplifði sorg, þunglyndi og vonbrigði. Ekkert barn ætti að þurfa að vita hvernig það er að missa móður sína.

Þremur árum síðar, fórum við hins vegar í musterið og vorum innsigluð sem fjölskylda. Hin sérstaka tilfinning andans kom aftur þennan dag og ég fann að móðir mín var við hlið mér í musterinu. Ég hef trú á því að ég muni hitta hana aftur einhvern tíma.

Ég reyni að muna alltaf eftir því sem ég skynjaði í musterinu. Ég hef andann hjá mér með því að lesa ritningarnar og læra um blessanir musterisins. Þegar veraldleg skilaboð reyna að rugla mig, rannsaka ég ritningarnar og treysti orðum spámanna. Þeir hvetja mig og styrkja trú mína.

Prenta