2023
Te-áskorunin
Janúar 2023


„Te-áskorunin,“ Til styrktar ungmennum, jan. 2023.

Sterkur grundvöllur

Te-áskorunin

Einn vetrardag var ég á gangi um skólalóðina með vinum mínum Alice og Trevor, þegar við komum að skilti sem á stóð: „Tebollar eru nú fáanlegir.“ Trevor bauðst spenntur að kaupa tebolla fyrir hvert okkar. „Nei, þakka þér fyrir,“ svaraði ég.

Trevor bauð mér te á hverjum degi og ég hélt áfram að afþakka. Að lokum spurði hann mig hvers vegna ég vildi ekki drekka teið. Ég sagði honum frá Vísdómsorðinu í von um að hann myndi skilja. Hann snéri þessu þá bara í stóran brandara. Hann reyndi að fá mig til að brjóta Vísdómsorðið.

„Það er ekki eins og þú sért að taka lyf,“ sagði hann. „Tebolli er skaðlaus!“

Í næstu viku tóku hann og vinir hans að stríða mér jafnvel enn meira. Ég reyndi að bera höfuðið hátt, þó það væri ekki auðvelt.

Með tímanum fór þeim að líða illa yfir gjörðum sínum og hættu að stríða mér. Einn daginn sagði kennarinn minn við mig: „Þú hefur alltaf verið fyrirmynd um trú þína og trúarbrögð. Ég er stoltur af þér.“

Ég er líka stolt af sjálfri mér. Það er ekki alltaf auðvelt, en ég veit að ég verð blessuð fyrir að standa föst á stöðlum mínum.

Nicolé M., West Midlands, Bretlandi

Prenta