Á slóðanum
Þar sem kirkjan var stofnuð
Komið í leiðangur með okkur til að skoða mikilvæga sögustaði kirkjunnar!
Ef Maggie og Lily E. vilja komast að því hvar kirkjan var stofnuð, þurfa þær ekki að fara langt. Hún var stofnuð rétt við hlið kapellunnar í Fayette, New York, þar sem þær sækja kirkju hvern sunnudag!
Kirkjan var ekki stofnuð í kirkjubyggingu, heldur í bjálkakofa. Spámaðurinn Joseph Smith hafði komið til að dvelja þar með Whitmer fjölskyldunni árið 1829. Upprunalega húsið er þar ekki lengur, en þessi bjálkakofi er á sama stað.
Kirkjubyggingin sem Maggie og Lily fara í, hefur gestamiðstöð með sýningarbás um heimili Whitmers og þá einstöku viðburði sem þar gerðust.