2021
Nafn kirkjunnar og efling Síonar
September/Október 2021


Fyrir foreldra

Nafn kirkjunnar og efling Síonar

Kæru foreldrar,

þið getið notað eftirfarandi greinar og myndirnar þar til að hefja umræður við fjölskyldu ykkar og hjálpa þeim að skilja mikilvæg efni, eins og að nota hið rétta nafn kirkjunnar og eflingu Síonar.

Hið rétta nafn kirkjunnar

Lesið sem fjölskylda sumar frásagnanna úr grein Eyrings forseta, „Svo mun kirkja mín nefnd,“ sem hefst á bls.8. Íhugið að rifja upp ræðu Nelsons forseta um þetta efni á aðalráðstefnu í október 2018. Hvernig hafið þið og fjölskylda ykkar verið blessuð, er þið hafið gert ykkar besta við að nota hið rétta nafn kirkjunnar – Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu?

Efla Síon

Spyrjið börn ykkar hverja þau telji vera merkingu Síonar. Notið svo grein öldungs Gerrit W. Gong, „Leið fram Síon,“ á bls.12, til að hjálpa þeim að læra meira um merkingu Síonar, bæði fyrr og síðar. Íhugið að ræða hvernig fjölskylda ykkar getur eflt Síon á heimili ykkar og í samfélaginu.

Kom, fylg mér Námshjálp

Sjá bls. 26 í Kom, fylg mér fyrir greinar um mismunandi efni sem styður við nám ykkar í Kenningu og sáttmálum í þessum mánuði.

Prenta