Ungmenni
Velkomin í verkefnabókina Eigin framþróun


Velkomin í verkefnabókina Eigin framþróun

Þú ert ástkær dóttir himnesks föður, sem komið hefur til jarðar á þessum einstæða tíma í helgum og dýrðlegum tilgangi. Göfug köllun þín er að nota krafta þína og áhrifamátt til góðs. Ástríkur himneskur faðir hefur blessað þig með gjöfum og hæfileikum sem gera þér kleift að uppfylla guðlegt ætlunarverk þitt. Er þú meðtekur og framfylgir gildum Stúlknafélagsins í lífi þínu munu persónulegar venjur bæna, ritningarnáms, hlýðni við boðorðin og þjónusta við aðra festast í sessi í lífi þínu. Þessar daglegu persónulegu venjur munu styrkja trú þína á og vitnisburð um Jesú Krist. Þær munu einnig leyfa þér að bera kennsl á og þróa með þér einstakar gjafir.

Notaðu ætíð áhrifamátt þinn til að verða fjölskyldu þinni til upplyftingar og blessunar, svo og öðrum stúlkum og piltum sem þú átt samskipti við. Heiðraðu kvendóm þinn, veittu prestdæminu stuðning þinn og hafðu ætíð í hávegum hið sanna hlutverk móður og föður.

Þú gengur til liðs við þúsundir stúlkna er kappkosta að „standa sem vitni Guðs, alltaf, í öllu og allsstaðar“ er þú tekst á við verkefnabókina Eigin framþróun (Mósía 18:9). Hafðu foreldra þína með í ráðum er þú, með bæn í huga, setur þér markmið í þeirri viðleitni að þroska kvenlegar dyggðir, styrkja vitnisburð þinn og ná þínu guðlegu takmarki. Nýttu tímann vel í Stúlknafélaginu og búðu þig undir að taka á móti helgiathöfnum musterisins, verða trúföst eiginkona og móðir og efla heimilið og fjölskylduna.

Æðsta forsætisráðið

Prenta